03. mars 2008 klukkan 22:31
Sælar dömur
Eins og við ákváðum á síðasta fund okkar ætluðum við að drekka okkur í hel í sumarbústað þessa helgi, elda yndislega vel grillað kjöt, gratineraðar kartöflur, unaðsleg salat með jarðaberjum og smá piparsósu ... ... eða eitthvað annað. Eftir matinn munum við fá okkur unaðslega bollu með ávöxtum í og horfa á norðurljósin og stjörnurnar á meðan við liggjum í pottinum og tölum um Fabíó....
... Nei ok við gerum allaveganna eitthvað svipað!
Meiri upplýsingar um þetta á fimmtudagskvöldið um 10 leitið því þá ætlum við að hittast saman á kaffihúsið Aróma og spjalla :)
Hverjar ætla að koma?
Endilega svarið æðislega vel og fljótt æðin mín
KvElnus
Einstakar
04. október 2007 klukkan 09:24
Já, kæru félagar nú er komið að því, saumó heima hjá mér (Dagnýju) á sunnudaginn næsta (7. október). Mæting er klukkan 18:30, þemað er ítalskt og allir komar með eitthvað, ég sé um drykkjarföng og ætla að búa til brauðstangir, Elna ætlar að koma með stór brauð og pestó, hins vegar er lítið mál að
Einstakar
01. júlí 2007 klukkan 18:44
Jæja frestur til að skila inn nýjum myndum fyrir nýjan banner rennur út á miðnætti á miðvikudaginn þann 4.7 '07
Og Margrét þú þarft að fara að drífa í þig að hafa saumó ekkert hangs !!!!! finna dag, drífa bara í þessu en ég var uppí bústað í nótt fór þangað eftir vinnu í gær og það var frekar nice að vera þar sól og fínerí í dag lá bara í sólbaði en ég nenni ekki að blogga meira núna heyri bara í ykkur ;)
kv. ásrún
Einstakar
01. júní 2007 klukkan 18:12
með daginn elsku Magga okkar !!!!!!!


En hún Magga okkar var að útskrifast í dag úr Flensborg á 3 árum og við erum ótrúlega stoltar af henni !!!!!
Og núna er hún að fara í inntökupróf í læknisfræðina, gangi þér geðveikt vel með það og vertu sjúklega dugleg að læra fyrir það!!!!!!!
Kv. Einstakar
ps. minni ykkur stelpur á að senda Maríu nýja mynd af ykkur fyrir headerinn ef þið viljið fá nýja mynd!!!!
Einstakar
23. maí 2007 klukkan 09:29
Hallo allir, eg er herna a hinu aedislega bokasafni og hinum megin vid gotuna er ibudin okkar, bokasafnid bydur upp a okeypis internet :) Tad er buid ad vera voda gaman hja okkur, fyrstu nottina gistum vid i hoteli sem var einu sinni klaustur, tad var i Tyskalandi, naestu nott gistum vid i sjuklega flottum bae i austurrisku olpunum, sem heitr Lermoos ad eg held (borid fram Leirmus fra okkar dyrum), tar gistum vid a voda kruttlegu skidagistihusi, samt enginn a skidum nuna, rekid af honum helli og konunni hans svo a kvoldin eda allavega sum kvold koma helli og tasha dottir hans og syngja og spila, kràargestum til mikillar gledi, onnur kvold er djasshljomsveit med fimmtugum vinum helli ad spila. Svo brunudum vid bara til Italiu og erum nuna i ibudinni okkar i litlum bae vid Garda vatnid, erum ymist buin ad vera i solbadi, litli svarti Hildur vill varla gera annad, eda skoda okkur um. Forum til Feneyja i gaer, ekkert sma flott, aetla sko aftur tangad, er buin ad ihuga mikid flutning tangad, se til med tetta. Jaeja eg verd ad fara nuna, vid aetlum vist ad gera eitthvad annad en ad hanga a bokasafninu i goda vedrinu.
Ciao bella
kv. Dagny
Einstakar
05. maí 2007 klukkan 21:56
Hvað ætliði að gera í sumar krútt?
Og hvenær eruði búnar í prófum?
Ég held allavega að María verði seinust búin enda tekur þetta einhvern voðalegan tíma þarna hjá MRingum, en ÉG hlakka ótrúlega mikið til sumarsins og MIG langar ótrúlega mikið í prófin eru búin og sumarið er að koma fögnuð með ykkur píunum og pæling að ég haldi hann kannski þegar ég kem hjem.
En við verðum að reyna að samstilla svona lagað ég fer til Ítalíu 17. maí og kem til baka í byrjun júní, svo verðum við allar á einhverju flakki í byrjun ágúst geri ég ráð fyrir, en endilega látið mig vita upp á prófin eru búin og sumarið er að koma fögnuðinn svo langar mig voða mikið að halda upp á 19. árið mitt með ykkur píunum. Æj, ég er bara forvitin, endilega látið vita um afdrif ykkar í athugasemdadálknum við færsluna :)

kv. Dagný Lag dagsins er Just Can't Get Enough með Depeche Mode
Einstakar
18. mars 2007 klukkan 00:10
Jæja ég ætla að vera sorglega pían og blogga hérna á lugardagskveldi, var að koma úr vinnunni og planið er að fara að lesa Sjálfstætt fólk. Já það mætti halda að ég væri áttræð en ekki átján. Hérna eru nokkrar myndir sem komu upp þegar ég tapaði mér og googlaði sjálfstætt fólk.



Fyrstu myndina skil ég alveg, gömul bókakápa en ég hef ekki grænan (eða hef grænan, yoda) afhverju Yoda ( star wars gutti fyrir þá sem ekki vita) og Hitler (x einræðisherra) voru að blanda sér í málið.
En semsagt ætla að reyna að klára þennan hluta af sjálfstæðu fólki í kveld svo er planið að sauma kjólinn fyrir grímuballið á morgun :) keypti efnið í gær. Þannig búningurinn er alveg kominn er samt ekki viss hvað ég ætla að gera við hárið ( Ásrún?) en ég ætla að vera blómálfur og allavega worka eitthvað af blómaskreytingunum úr fermingunni minni í hárið. En jæja grímuballið er semsagt á þriðjudaginn ég og ELna erum búnar að fjárfesta í miða og alles held að Kristín ætli að mixa saman viðburðum, grímuballinu og afmælinu hans Eika, og fara út að borða með Eika í grimubúning, hugsalega kúreka, og slá þannig tvær flugur í einu höggi og missa ekki af neinu. Hvað segirðu Kristín góð hugmynd eða hvað :)
kv. Dagný ;)
Einstakar
12. mars 2007 klukkan 19:06
jæja skvízur
djöfull erum við orðnar slappar í þessu vááá!!!! allavega allt gott að frétta af mér ég er í vinnuni núna rosa stuð niðri í miðasölu.
21 dagur í að mín leggi land undir fót (hvernig sem maður segir það) en fyrir ykkur sem ekki vita að þá eru ég og Hulda að fara til köben 2 -8 apríl geðveikt stuð og við ætlum að missa okkur í búðunum hehe við erum sko að tala um að ég hef ekki farið til útlanda í 2 ár !!!!!!!!
Ég er líka að fara að taka þátt í íslandsmóti Iðnnema 23 mars í kringlunni. þetta er semsagt keppni í hárgreiðslu eða reyndar fleiru en ég keppi bara í hárgreiðslu en við fengum að vita þetta uppí skóla um daginn að það væru 2 af annarri önn sem fengju að taka þátt og það er þannig úr hverjum skóla þetta er iðnskólinn í hfj, iðnskólinn í rkv. og einhver skóli í keflavík sem að ég veit ekki hvað heitir.
En það þurfti að halda forkeppni uppí skóla útaf því að við vorum 8 sem vildum taka þátt í þessu og í forkeppninni þá þurftum við bara að greiða. Ég og en önnur stelpa unnum þessa keppni semsagt og tökum þá þátt í Íslandsmóti Iðnnema og þá fáum við hausa sem að við litum áður en við keppum. Í keppninni sjálfri að þá byrja ég að klippa og fæ 20 mín sem er frekar lítið en klippingin þarf ekkert að vera rétt og ekki eftir neinum reglum hún þarf bara að lúkka vel, og svo fáum við 40 mín til að gera einhverja geðveika greiðslu.
Ég skal setja myndir af greiðslunni sem ég gerði upp í skóla hérna inn þegar ég kem heim.
En ég var að pæla stúlkur með bústað ég kemst ekki neina helgi núna fyrir páska og svo fljótlega eftir páska þá byrja allir að missa sig í próflestri og eitthvað þannig að ég var að pæla ég á afmæli 13 apríl sem er semsagt föstudagurinn eftir páska að við gætum kannski farið uppí bústað þá, en þetta er vinnuhelgin mín og ég er búin að redda mér fríi fös og lau en ekki sun en það ætti ekki að vera neitt mál að redda honum.
en ég veit að flestar ykkar eru með sömu vinnuhelgi og ég en með góðum fyrirvara ætti vonandi ekki að vera neitt mál að redda fríi en endilega tjáið skoðun ykkar á þessu.
jæja ég er hætt að babla núna heyri í ykkur sætu og kommentið!!!!!
Ásrún
Einstakar
03. mars 2007 klukkan 14:58
Stelpur mínar, hvað varð eiginlega um saumó ??
Mig langar í saumó
...
En hver er næstur ?
Allar að commenta
kv. kristín ( sem er að blogga í fyrsta skifti á þessari síðu, jejjjj
)
Einstakar
20. febrúar 2007 klukkan 22:14
Ég ætti kannski að vera að læra sögu en jæja ég varð pirruð á að það væri aldrei nýtt blogg hérna þegar ég kíki.
Allavega ég ætla að segja ykkur dáldið skondna sögu. Aðalpersónur, ég, Hildur og vinkona hennar (man ekki hver).
Hildur og vinkona voru heima hjá okkur og vinkona hennar spurði hvort hún gæti fengið vatnsglas sem væri ekki frásögur færandi nema Hildur ákvað að krydda dáldið fjölskyldulífið okkar eitthvað á þessa leið:
V: má ég fá vatnsglas.
H: Við eigum eiginlega engin glös.
V: Nú afhverju?
H: Sko engin heil allavega, systir mín borðar þau öll, eða bítur þau í sundur.
V: Ha?
H: Já það er bara eitthvað að henni.
V: Okei.
Seinna um kvöldið var Hildur svo að segja mér frá þessari sögu sem hún laug að vinkonu sinni (ég semsagt brýt ekki glös með munninum, né borða). Við fórum svo að pæla hvort það væri hægt að brjóta glas með munninum. Vorum báðar með vatnsglös.
H: Ætli það sé hægt.
D: Hmm veit ekki. (bítur laust í glasið)
H: hmm...(bítur í glasið fastar og fastar og endar með að brjóta það)
Það er semsagt Hildur sem bítur og brýtur en ekki ég. Okkur fannst þetta allavega dáldið fyndið, sérstaklega Hildur með hluta af glasinu uppi í sér (hún meiddi sig ekki, en ég mæli ekki með að leika þetta eftir).
kv. Dagný
Einstakar